Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Vinnuskóla Kópavogs.

Vinnuskólinn að störfum
Vinnuskólinn að störfum

Allir unglingar sem búsettir eru í Kópavogi og verða fjórtán til sautján ára á árinu fá vinnu í Vinnuskólanum. Umsóknarfrestur er til 11. maí.

Undanfarna áratugi hefur Kópavogsbær boðið unglingum í elstu bekkjum grunnskóla störf í vinnuskóla og hafa margir Kópavogsbúar stigið þar sín fyrstu skref á vinnumarkaði. 

Helstu verkefnin eru snyrting og fegrun bæjarins en elstu unglingunum býðst einnig að vinna við aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum og félögum í bænum. Rúmlega 1.400 nemendur tóku þátt í Vinnuskólanum síðastliðið sumar.

Vinna í skólanum er í senn uppeldi, afþreying og tekjusköpun fyrir unglingana. Þeim er kennt að umgangast verkefni sín, notkun verkfæra og að bera virðingu fyrir samstarfsfólki sínu. Skólinn er þó ekki einungis vinna heldur er þar líka félagslíf, eins og í öðrum skólum.

Nánar um Vinnuskóla Kópavogs