RIFF verður aftur í Kópavogi

Stuttmyndir í Sundlaug Kópavogs í tengslum við RIFF, kvikmyndahátíð.
Stuttmyndir í Sundlaug Kópavogs í tengslum við RIFF, kvikmyndahátíð.

RIFF kvikmyndahátíðin verður aftur í Kópavogi í haust en lista- og menningarráð bæjarins hefur ákveðið að styrkja hátíðina um 3,5 milljónir króna. Dagskráin í Kópavogi verður kynnt er nær dregur en sérviðburðir verða eins og í fyrra í menningarhúsum bæjarins. Stefnt er á að hafa viðburði meðal annars í  Gerðarsafni, Salnum, Bókasafni Kópavogs og Molanum.

Dagskráin í Kópavogi er eins og síðast unnin í nánu samstarfi RIFF og forstöðumanna menningarhúsa Kópavogsbæjar. Einnig er stefnt að því að ungmenni í grunnskólum Kópavogs fái leiðsögn og kennslu í kvikmyndagerð, líkt og í fyrra. Þá var haldið námskeið sem lauk með frumsýningu á stuttmyndum í Smárabíói á RIFF-hátíðinni. Áhersla verður lögð á kvikmyndalistina, fræðslu sem og samspil kvikmynda við þær listgreinar sem menningarhús bæjarins endurspegla.

„Þetta er í annað sem Kópavogur tekur þátt í RIFF. Hátíðin í fyrra heppnaðist einstaklega vel og var dagskráin fjölbreytt og skemmtileg og viðburðir á borð við kvikmyndatónleika í Salnum mjög vel sóttir. Við hlökkum til að starfa áfram með RIFF í ár,“ segir Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista – og menningarráðs Kópavogs.

Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, lýsir yfir mikilli ánægju með samstarfið. „Það var ánægjulegt hvað íbúar Kópavogs tóku vel í dagskrá RIFF í fyrra. Það hvetur okkur áfram í okkar starfi og við erum afar spennt fyrir því að vinna með menningarhúsum og skólum Kópavogs að nýju. Nú erum við að undirbúa komandi hátíð og hlökkum til að kynna dagskrána þegar nær dregur.“

Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er einn af stærstu og fjölbreyttustu menningarviðburðum á Íslandi. RIFF leggur áherslu á unga kvikmyndagerðarmenn og framsækna kvikmyndagerð. Hátíðin í ár er sú tólfta í röðinni og mun hún standa frá 24. september til 4. október.