Sumarnámskeið í Kópavogi

Frá leiksýningu 16 og 17 ára unglinga í Götuleikhúsinu í Kópavogi.
Frá leiksýningu 16 og 17 ára unglinga í Götuleikhúsinu í Kópavogi.

Á sumarvef Kópavogsbæjar er að finna fjölbreytt og skemmtileg frístunda, - leikja - og íþróttanámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Námskeið á vegum frístunda - og íþróttadeildar verða m.a. hjóla- og ævintýranámskeið, smíðavöllur, skapandi kvikmyndagerð og siglinganámskeið. Sumarstarf í frístundaklúbbnum Hrafninum er fyrir börn og unglinga með sérþarfir og atvinnutengt frístundaúrræði verður fyrir ungmenni með sérþarfir á aldrinum 17 til 24 ára í starfs- og frístundaklúbbnum Tröð. 

Götuleikhús Kópavogs og Skapandi sumarstörf er vinnutengt unglinga - og ungmennastarf og munu þau glæða bæinn leik- og tónlistarlífi með ýmsum hætti.

Verið velkomin í litríkt sumarstarf í Kópavogi.

Helstu nýjungar í kynningarefni á sumarvefnum eru námskeið í kvikmyndagerð, sumaræfingar í siglingum hjá siglingafélaginu Ými og listtengd námskeið á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi. Leynileikhúsið býður upp á sumarnámskeið í leiklist og  Hugarfrelsi er með námskeið í að efla styrkleika hvers og eins. Auk þess er meira framboð af sumarnámskeiðum í ágúst á vegum íþróttafélaga í Kópavogi. Kvikmyndanámskeið verður einnig í boði í Bókasafni Kópavogs.

Sumarvefur Kópavogs