Tillaga um kaup á húsnæði í Norðurturni

Tölvuteiknuð mynd af Norðurturni. Mynd/Nýr Norðurturn.
Tölvuteiknuð mynd af Norðurturni. Mynd/Nýr Norðurturn.

Tillaga um heimild til að kaupa húsnæði fyrir stjórnsýslu Kópavogsbæjar í nýja Norðurturninum við Smáralind verður tekin fyrir í bæjarstjórn Kópavogsbæjar þriðjudaginn 23. júní. Við undirbúning málsins hefur umtalsverðri vinnu verið verið lagt í að skoða kosti þess að kaupa nýtt húsnæði í stað þess að gera við núverandi húsnæði stjórnsýslunnar í Fannborg. Tekið hefur verið saman minnisblað þar sem farið er yfir forsögu tillögunnar og undirbúning.

Áhugasamir geta nálgast það hér á heimasíðunni með því að smella hér .