Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin laugardaginn 29.nóvember. Dagskrá verður á útisvæði og í menningarhúsum frá kl. 15-17. Dagskrá á útisviði hefst kl. 16:30 sem endar á því að Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri tendrar ljósin á jólatré Kópavogsbæjar.
Kópavogsbær hefur gert samning við íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Evolv um innleiðingu stafræns vinnuafls. Markmiðið er að tímafrek verkefni sem krefjast mikillar handavinnu verði leyst af stafrænu vinnuafli.
Ár hvert veitir Velferðar- og mannréttindaráð Kópavogs hagsmuna- og félagasamtökum styrki til verkefna á sviði velferðarmála. Einnig eru veittir
styrkir til verkefna sem hafa framgang mannréttinda og jafnréttis í Kópavogi að markmiði.
Upplýsingafundur fyrir íbúa og fyrirtæki við Fannborgarreitinn veður haldinn þriðjudaginn 18. nóvember kl 16:30 í Kópavogsskóla. Þar verður fjallað um framvindu verkefnis við Fannborgarreit, en á næstu dögum mun verktaki hefja hreinsun innan úr húsunum á lóðum Fannborg 2, 4 og 6.
Sá ánægjulegi áfangi náðist föstudaginn 14. nóvember að Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað. Undirskriftarviðburðurinn fór fram á aðalfundi SSH í Garðaholti í Garðabæ.
Leikskólinn Álfaheiði var tilnefndur til Íslensku hljóðvistarverðlaunanna 2025 – verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi hljóðhönnun og vandað umhverfi þann 12. nóvember 2025.
Kópavogsbær vill stuðla að góðri heilsu, vitund og hreysti starfsfólk sbr. áherslur í okkar mannauðsstefnu. Eitt af leiðarljósunum er að hjá Kópavogsbæ sé “Gott að vera" og heilsuvikurnar eru einmitt eitt verkfæri til þess þar sem lögð er áhersla á forvarnir sem hlúa að andlegri og líkamlegri líðan hvers og eins starfsmanns.