Fréttir & tilkynningar

Anna Birna Snæbjörnsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs, Silja Dís Guðjónsdóttir, atferlisfræðingur á g…

Öryggi og vellíðan í grunnskólum verði eflt

Nám- og starfsumhverfi sem styður öryggi og vellíðan er heiti nýrrar viðbragðsáætlunar sem samþykkt var í menntaráði Kópavogs 17.mars síðastliðinn. Markmið áætlunarinnar er að styrkja heilbrigt og faglegt skólaumhverfi sem byggir á öryggi, trausti og virðingu fyrir nemendum og starfsfólki.
Inga Bríet Valberg

Mörg börn sterkari en einn fullorðinn

Níunda Kópavogssagan er komin í loftið en það er Inga Bríet Valberg, nemandi í 7. bekk í Snælandsskóla sem er viðmælandinn.
Götugangan í Kópavogi er vinsæll viðburður fyrir 60 ára og eldri.

Götuganga Virkni og vellíðan haldin í fjórða sinn

Götuganga Virkni og Vellíðan verður haldin þriðjudaginn 12. maí næstkomandi klukkan 13:00 í Kópavogi. Um er að ræða vinsælan íþrótta- og heilsueflingarviðburð fyrir 60 ára og eldri sem nú fer fram í fjórða sinn.

Malbikun

Miðvikudaginn 29. apríl frá kl. 9:00 til um það bil 15:00 er áætlað að endurnýja malbik á Kópavogsbraut á milli Sunnuhlíðar og Skjólbrautar ef veður leyfir. Lokað verður fyrir umferð við hringtorg á Kópavogsbraut við Sunnuhlíð og á gatnamótum Kópavogsbrautar og Skjólbrautar.
Vorhreinsun fer fram dagana 30.apríl til 19.maí.

Vorhreinsun í Kópavogi

Vorhreinsun í Kópavogi fer fram dagana 30.apríl til 19.maí. Þá daga verða settir upp opnir gámar fyrir garðaúrgang á fimm stöðum í Kópavogi sem verða aðgengilegir 30. apríl til 19. maí.
Frá skólagörðum í Kópavogi.

Frístund.is – nýr þjónustuvefur sem birtir allt frístundastarf á einum stað

Nú er kominn í loftið nýr þjónustuvefur, fristund.is, sem auðveldar íbúum að finna upplýsingar um íþróttir, námskeið og annað skipulagt frístundastarf fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Á vefnum má sjá allt framboð frístundastarfs á einum stað, flokkað eftir aldri og staðsetningu, með einfaldri leit og skýrum upplýsingum.
Ásdís Kristjánsdóttir ásamt Þorgeiri Guðmundssyni, gesti númer 550 frá því að hún tók við embætti.

550 íbúar hafa mætt í viðtalstíma bæjarstjóra

Þorgeir Guðmundsson, íbúi í Kópavogi, fundaði með Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra á dögunum en svo skemmtilega vill til að Þorgeir er gestur númer 550 síðan Ásdís tók við sem bæjarstjóri.
Niðurstöður í nýjum skýrslum styðja við það sem þegar var vitað og eru ekki að umbylta þekkingu á h…

Langtímahættumat vegna hraunavár á Reykjanesskaga

Í dag komu út tvær skýrslur um langtímahættumat vegna hraunvár á Reykjanesskaga, en þær eru hluti af umfangsmiklu verkefni Veðurstofunnar í að meta heildstætt eldfjallavá á öllum Reykjanesskaganum.
Bláfjöll eru í landi Kópavogs.

Hættumat skíðasvæða til kynningar

Veðurstofa Íslands hefur unnið hættumat fyrir Bláfjöll og Skálafell sem lagt hefur verið fyrir SSH og gefst íbúum nú jafnframt kostur á að kynna sér drögin.
Stóri plokkdagurinn er að þessu sinni sunnudagurinn 26.apríl.

Stóri plokkdagurinn 2026

Kópavogsbær tekur þátt í árlega hreinsunarátakinu Stóra plokkdeginum sem haldinn er sunnudaginn 26.apríl.