Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forvarna- og frístundanefnd - 39. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
  • Rakel Másdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Rakel Másdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Margrét S Sigbjörnsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Margrét S Sigbjörnsdóttir - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
  • Sigursteinn Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
  • Jónas Már Torfason - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Jónas Már Torfason - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Ritari

  • Linda Udengaard

Dagskrá fundar

01

Íbúalýðræði þátttökufjárlagagerð

Sólveig H. Jóhannsdóttir skipulagsfræðingur á umhverfissviði kynnir verkefnið "Okkar Kópavogur".

Forvarna- og frístundanefnd þakkar fyrir kynninguna. Verkefnið er þarft og gefur íbúum Kópavogs tækifæri til að hafa áhrif á umhverfi sitt.

02

Velferðarsvið. Niðurstöður stjórnsýsluúttektar Capacent

Kynntar niðurstöður úr stjórnsýsluúttekt Capacent um færslu félagsmiðstöðva eldri borgara frá menntasviði yfir á velferðasvið.

Forvarna- og frístundanefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar. Nefndin telur að ófullnægjandi faglegar upplýsingar liggi fyrir varðandi tillöguna og óskar eftir því að fulltrúi velferðarsviðs, forstöðumaður félagsmiðstöðva eldri borgara og formaður FEBK komi á þann fund. Starfsmanni falið að boða viðkomandi á fundinn.

03

Samfés-Landsmót í Kópavogi 2016

Samfés hefur óskað eftir að Kópavogur taki að sér skipulagningu og framkvæmd á landsmóti félagsmiðstöðva haustið 2016.

Frístunda- og forvarnanefnd samþykkir að Landsmót félagsmiðstöðva á Íslandi verði haldið í Kópavogi 30.9-2.10.2016.

Kostnaður frístundadeildar vegna mótsins rúmast innan fjárhagsáætlunar 2016.