Forvarna- og frístundanefnd - 35. fundur
í fundarsal Fannborg 2, 2. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Rakel Másdóttir - aðalfulltrúi
- Margrét S Sigbjörnsdóttir - aðalfulltrúi
- Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Stefán Ólafsson - varafulltrúi
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Lagt fram yfirlit yfir nýtingu frístundastyrkja Kópavogsbæjar á árinu 2015. Jafnframt lagðar fram upplýsingar um fjölda barna og unglinga á aldrinum 5-18 ára í bænum. Framlagt skjal er fyrsta yfirlit yfir heilt ár með breyttum reglum. Starfsmenn greindu frá því að unnið væri að nánara greiningarformi fyrirliggjandi upplýsinga út úr Frískó-kerfinu sem ætti að vera tilbúið fyrir næsta fund nefndarinnar.
Forvarna- og frístundanefnd fagnar fram komnum upplýsingum og mun taka málið aftur fyrir þegar frekari úrvinnsla gagna hefur farið fram.
Lagðar fram tillögur að umsóknarferli fyrir árið 2016.
Rætt um umsóknarferli, reglur og umsóknareyðublöð fyrir Fornvarnasjóð Kópavogs. Ákveðið að umsóknarfrestur verði frá 15. mars til 30. apríl 2016. $line$Auglýst verður í fjölmiðlum og markpóstur sendur á þá aðila sem tengjast tómstunda- og forvarnastarfi barna og unglinga.
Lögð fram vinnuskjöl fyrir nefndina. Efni verður safnað saman sem síðan nýtist við stefnumótun fyrir fristundamál í Kópavogi.
föstudaginn 19. febrúar kl. 8.30-13.30
í Skriðu Menntavísindasviði við Háteigsveg