Forvarna- og frístundanefnd - 41. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalfulltrúi
- Rakel Másdóttir - aðalfulltrúi
- Margrét S Sigbjörnsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllMargrét S Sigbjörnsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Stefán Ólafsson - varafulltrúi
- Páll Marís Pálsson - aðalfulltrúi
- Sigursteinn Óskarsson - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir
Dagskrá fundar
Umræða og umsögn um niðurstöður stjórnsýsluúttektar Capacent. Tillögur um breytingar.
Forvarna- og frístundanefnd leggur áherslu á að við skipulag á rekstri félagsmiðstöðva eldri borgara verði tryggð fagmennska í frítímaþjónustu og frístundastarfi. Eins skuli tryggja jákvæð samskipti og samvinnu starfsmanna félagsmiðstöðva eldri borgara og forsvarsmanna eldri borgara.
Félagsmiðstöðvar eldri borgara í Kópavogi bjóða upp á fjölbreytt og metnaðarfullt frístundastarf. Áhersla er lögð á þátttöku eldri borgara í þeim frístundum sem standa til boða auk þess sem hvatt er til þeirra frumkvæðis við frístundastarf.
Markmiðið er að fyrirbyggja félagslega einangrun eldri borgara og þannig hefur starfið mikið forvarnagildi. Mikilvægt er að starfsmenn félagsmiðstöðvanna hafi menntun og reynslu í frístundafræðum. Samskipti og samvinna milli eldri borgara og stjórnenda og starfsmanna félagsmiðstöðva er lykillinn að gæðum og nýtingu þeirrar þjónustu sem boðið er upp á í félagsmiðstöðvunum.